Hoppa yfir valmynd
Úrskurðir félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins

Úrskurður félags- og vinnumarkaðsráðuneytis 4/2023

Föstudaginn 15. desember 2023, var í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi:

 

 

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi til félagsmálaráðuneytisins, síðar félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, sbr. forsetaúrskurð nr. 5/2022 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti, dags. 23. september 2021, kærði […], lögmaður, fyrir hönd Reykjavik tourist informati ehf., kt. 670407-0390, og […], sem er filippseyskur ríkisborgari, fd. […], ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2021, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […] í því skyni að ráða sig til starfa hjá Reykjavik tourist informati ehf.

 

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er filippseyskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Reykjavik tourist informati ehf. Sótt hafði verið um umrætt atvinnuleyfi á grundvelli 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

 

Fyrrnefndri ákvörðun vildu kærendur ekki una og kærðu þeir ákvörðunina til ráðuneytisins með erindi, dags. 23. september 2021. Í erindi kærenda kemur meðal annars fram að viðkomandi útlendingur hafi dvalið hér á landi frá því á ágúst 2015 en þá hafi honum verið veitt dvalarleyfi fyrir námsmenn á grundvelli laga um útlendinga, nr. 80/2016. Jafnframt kemur fram að viðkomandi útlendingi hafi verið veitt dvalarleyfi á sama grundvelli 19. október 2020 með gildistíma til 15. júlí 2021.

 

Í erindi kærenda kemur enn fremur fram að þrátt fyrir að hægt sé að færa rök fyrir því að ráða hefði mátt einstakling í umrætt starf innan Evrópska efnahagssvæðisins séu að mati kærenda uppfyllt skilyrði, a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, en ákvæðinu sé ætlað að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi eins og eigi við þegar Covid faraldur hefur geisað. Jafnframt kemur fram að þrátt fyrir þá tölfræði í tengslum við atvinnuleysi innanlands sem og innan aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins, sem Vinnumálastofnun fjalli um í ákvörðun sinni, þá sé staðan ekki alveg svo einföld að mati kærenda. Um sé að ræða starf í gestamóttöku á hóteli utan höfuðborgarsvæðisins sem auglýst hafi verið á vefsíðu Vinnumálastofnunar og hafi allir sem sótt hafi um og hafi viljað ráða sig til starfa hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda verið ráðnir til starfa. Þrátt fyrir það sé vöntun á starfsfólki hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda og hafi umrætt hótel því ekki yfir að ráða starfsfólki til að anna eftirspurn en erfitt sé að fá starfsfólk til að sinna störfum utan höfuðborgarsvæðisins. Viðkomandi útlendingur hafi hins vegar áður starfað hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda og hafi þá reynslu sem starfið krefst að mati kærenda.

 

Erindi kærenda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 4. október 2021 og var Vinnumálastofnun veittur frestur til 18. október 2021 til að veita ráðuneytinu umbeðna umsögn. Með bréfi, dags. 20. október 2021, ítrekaði ráðuneytið beiðni sína til Vinnumálastofnunar, dags. 4. október 2021, um umsögn stofnunarinnar.

 

Í umsögn Vinnumálastofnunar, sem barst ráðuneytinu 22. október 2021, kemur meðal annars fram að umrætt starf hafi verið tilgreint í ráðningarsamningi sem starf í móttöku hótels og af umsóknargögnum hafi að mati stofnunarinnar mátt ráða að um væri að ræða almennt starf sem ekki krefðist þess að sá sem ráðinn yrði til að gegna því hefði lokið tilteknu námi. Við úrvinnslu umsóknarinnar hafi einnig legið fyrir að hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi þann 20. apríl 2021 auglýst sambærilegt starf laust til umsóknar á vefsíðu Vinnumálastofnunar og að umsóknarfrestur hafi verið tilgreindur til 31. maí sama ár. Þann 9. júlí 2021 hafi starfið verið auglýst laust til umsóknar að nýju og hafi umsóknarfrestur verið til 22. júlí 2021. Samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar hafi í það minnsta tólf umsóknir um starfið borist með milligöngu stofnunarinnar í kjölfar fyrrnefndrar auglýsingar en einnig gátu umsækjendur sent umsóknir sínar beint til hlutaðeigandi atvinnurekanda án milligöngu stofnunarinnar. Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur jafnframt fram að kærendur hafi vísað til þess að allir þeir sem sótt hafi um fyrrnefnt starf hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi verið ráðnir í kjölfar auglýsinganna. Í því sambandi tekur Vinnumálastofnun fram í umsögn sinni að enginn af þeim umsækjendum, sem sótt hafi um það starf sem auglýst hafi verið með milligöngu Vinnumálastofnunar, hafi verið ráðinn til starfa auk þess sem hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki veitt stofnuninni upplýsingar um ráðningar í kjölfar auglýsinganna. Þá hafi enginn umsækjenda sem hafi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun tilkynnt um að hafa hafið störf hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda í kjölfar auglýsinganna.

 

Í umsögn sinni tekur Vinnumálastofnun enn fremur fram að við mat á því hvort veita skuli tímabundið atvinnuleyfi á grundvelli skorts á starfsfólki innanlands eða innan Evrópska efnahagssvæðisins hafi stofnunin almennt ekki talið það óeðlilegt eða ósanngjarnt að atvinnurekendur þurfi að þjálfa starfsmann til að sinna tilteknum störfum. Það hafi verið mat stofnunarinnar, með hliðsjón af þeim upplýsingum sem hafi legið fyrir í því máli sem hér um ræðir, að um hafi verið að ræða almennt starf í gestamóttöku hótels sem ekki krefðist sérstakrar færni hjá þeim sem ráðinn yrði til starfa. Eðli starfsins sé að mati Vinnumálastofnunar slíkt að starfsmaður öðlist færni við að gegna starfinu og ekki sé óeðlilegt að atvinnurekandi þjálfi upp einstakling til að gegna því enda hafi ekki komið fram sjónarmið frá hlutaðeigandi atvinnurekanda þess efnis að sérstakar kröfur væru gerðar til þess sem ráðinn yrði til að gegna umræddu starfi umfram það sem almennt er gert í tengslum við ráðningar í sambærileg störf.

 

Þá vísar Vinnumálastofnun til þess í umsögn sinni að meðaltal atvinnuleysis innan Evrópusambandsins hafi verið 6,9% í júlí 2021 og að meðaltal skráðs atvinnuleysis hér landi hafi verið 6,1% í sama mánuði. Með vísan til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og að virtum gögnum málsins í heild hafi það verið mat Vinnumálastofnunar að hægt hafi verið að manna umrætt starf hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda með því að ráða til starfa einstakling sem þegar hefði ótakmarkaða heimild til að ráða sig til starfa hér á landi. Að öllu framansögðu telur Vinnumálastofnun í umsögn sinni að rétt hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa viðkomandi útlendingi.

 

Með bréfi ráðuneytisins, dags. 1. nóvember 2021, var kærendum gefinn kostur á að koma á framfæri við ráðuneytið athugasemdum við fyrrnefnda umsögn Vinnumálastofnunar og var frestur veittur til 16. nóvember 2021. Með bréfi til kærenda, dags. 30. nóvember 2021, ítrekaði ráðuneytið beiðni sína um athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar auk þess sem tekið var fram að bærust ráðuneytinu ekki umrædd gögn fyrir 8. desember 2021 myndi ráðuneytið ljúka afgreiðslu málsins á grundvelli fyrirliggjandi gagna. Þar sem frekari athugasemdir hafa ekki borist ráðuneytinu frá kærendum mun ráðuneytið ljúka afgreiðslu málsins á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

 

II. Niðurstaða.

Samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, er heimilt að kæra til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis ákvörðun Vinnumálastofnunar á grundvelli laganna. Í máli þessu er kærð ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2021, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á starfsfólki, sbr. 9. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

 

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga á innlendum vinnumarkaði eru veitt í samræmi við lög um atvinnuréttindi útlendinga, reglugerðir sem settar eru með heimild í þeim lögum og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra.

 

Samkvæmt 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er heimilt að veita tímabundið atvinnuleyfi vegna tiltekins starfs hér á landi þegar starfsfólk fæst hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, í EFTA-ríkjum eða í Færeyjum. Skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis samkvæmt ákvæðinu eru meðal annars að skilyrði 1. mgr. 7. gr. laganna séu uppfyllt. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laganna er það skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi sé veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað eftir starfsfólki með aðstoð Vinnumálastofnunar nema slík leit sé fyrirsjáanlega árangurslaus að mati stofnunarinnar.

 

Í athugasemdum við 7. gr. a frumvarps þess er varð að gildandi 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. lög nr. 78/2008, um breytingu á lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og lögum nr. 47/1997, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum, kemur fram að ákvæðið fjalli um tímabundið atvinnuleyfi sem ætlað er að mæta tímabundnum sveiflum í íslensku atvinnulífi. Gert sé „ráð fyrir að einungis reyni á ákvæði þetta við sérstakar aðstæður enda mikil áhersla lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins. Áfram er því gert ráð fyrir því að atvinnurekandi þurfi að færa sérstök rök fyrir nauðsyn þess að ráða til sín erlent starfsfólk frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins enda verði höfð hliðsjón af aðstæðum á innlendum vinnumarkaði við veitingu atvinnuleyfa sem og hvort vinnuafl fáist frá aðildarríkjum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EFTA-ríkjum eða Færeyjum. Er gert ráð fyrir að ríkar kröfur verði gerðar til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði en mat á þörf eftir vinnuafli verður áfram á ábyrgð Vinnumálastofnunar.“ Er jafnframt vísað til athugasemda við 5. gr. frumvarpsins er varð að gildandi 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga. Þar er tekið fram að atvinnurekandi verði að gera grein fyrir þeim tilraunum sem hann hafi gert til að ráða fólk sem þegar hafi aðgang að innlendum vinnumarkaði auk þess sem áhersla er lögð á að atvinnurekendur leiti fyrst eftir starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með aðstoð Vinnumálastofnunar með milligöngu EURES, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, áður en leitað er út fyrir svæðið eftir starfsfólki. Þá segir að það falli „í hlut Vinnumálastofnunar að kanna sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt hvert atvinnuástandið innan lands er á hverjum tíma og hvort útséð er um að vinnuafl fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, frá EFTA-ríkjum eða Færeyjum, sbr. a-lið 1. mgr. ákvæðis þessa, enda hlutverk stofnunarinnar að fylgjast með atvinnuástandi í landinu í því skyni að koma í veg fyrir atvinnuleysi eins og frekast er unnt.“

 

Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar á því hvort skilyrði ákvæðisins fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa séu uppfyllt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni sem og á því hvort starfsfólk fáist innan Evrópska efnahagssvæðisins, EFTA-ríkja eða Færeyja. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis. Beiðni um aðstoð Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana er því lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis enda telji stofnunin leitina ekki fyrirsjáanlega árangurslausa.

 

Við mat á því hvort skilyrði a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga séu uppfyllt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig 2. gr. sömu laga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið. Ákvæði 28.-30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla sérstaklega um frjálsa för launafólks og eru ákvæðin nánar útfærð í gerðum um þetta efni sem hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 492/2011/ESB, um frjálsa för launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem tekið hefur gildi hér á landi, sbr. lög nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til starfa á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins sama aðgang og íslenskir ríkisborgarar hafa að lausum störfum á innlendum vinnumarkaði og þar með forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að þeim störfum.

 

Það er því jafnframt lögbundið skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á starfsfólki á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga að atvinnurekandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu EURES, vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innanlands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð Vinnumálastofnunar sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana.

 

Fram kemur í gögnum málsins að eftir að hafa lagt mat á aðstæður á innlendum vinnumarkaði hafi Vinnumálastofnun talið að meginregla ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga hafi átt við í máli þessu og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að talið væri fullreynt að ráða einstakling til starfa með aðstoð stofnunarinnar sem þegar hefði heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana. Máli sínu til stuðnings vísar stofnunin meðal annars til þess að í júlí 2021 hafi skráð atvinnuleysi innanlands verið 6,1% auk þess sem atvinnuleysi innan Evrópusambandsins hafi verið 6,9% á sama tíma. 

 

Að mati ráðuneytisins verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar þess efnis að hlutaðeigandi atvinnurekanda hafi borið að óska eftir aðstoð stofnunarinnar við leit að starfsmanni sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum. Þá verður að mati ráðuneytisins ekki annað ráðið af gögnum málsins en að sótt hafi verið um tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs fyrir ófaglærðan starfsmann í gestamóttöku hótels og við almenn hótelstörf. Á það ekki síst við í ljósi þess að ekki verður ráðið af gögnum málsins að gerð hafi verið krafa um að sá sem ráðinn yrði til að gegna umræddu starfi hafi lokið tilteknu námi auk þess sem fram kemur í gögnunum að fyrirhuguð laun séu á bilinu 350-400 þúsund krónur á mánuði fyrir fullt starf.

 

Við framkvæmd laga um atvinnuréttindi útlendinga hefur verið lögð áhersla á mikilvægi þess að viðhaldið sé jafnvægi á innlendum vinnumarkaði milli framboðs á starfsfólki og eftirspurnar eftir því. Þykir því jafnframt þýðingarmikið að horfa til þeirra langtímaáhrifa sem veiting tímabundinna atvinnuleyfa getur haft á jafnvægi á vinnumarkaði hvað varðar framboð og eftirspurn eftir starfsfólki.

 

Það fellur ávallt í hlut atvinnurekenda að leita fyrst eftir starfsfólki á innlendum vinnumarkaði og sameiginlegum vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins áður en atvinnuleyfi er veitt á grundvelli 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga vegna skorts á starfsfólki. Ríkar kröfur eru því gerðar til atvinnurekenda svo talið verði fullreynt, meðal annars með milligöngu Vinnumálastofnunar, að finna starfsfólk sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana áður en skilyrði fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa vegna starfa ríkisborgara ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins eru talin uppfyllt enda þótt ætla verði atvinnurekendum ákveðið svigrúm varðandi þær kröfur sem þeir gera til einstaklinga sem þeir ráða til starfa.

 

Fram kemur í umsögn Vinnumálastofnunar, sem barst ráðuneytinu 22. október 2021, að sambærilegt starf og það starf sem hér um ræðir hafi verið auglýst hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda í tvígang á vef Vinnumálastofnunar eða frá 20. apríl 2021 til og með 31. maí sama ár og frá 9. júlí 2021 til og með 22. júlí sama ár og að í það minnsta tólf einstaklingar hafi sótt um starf hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda í kjölfarið með milligöngu Vinnumálastofnunar en þar fyrir utan hafi einstaklingar getað sótt beint um starf hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda. Jafnframt kemur fram í fyrrnefndri umsögn Vinnumálastofnunar að enginn af þeim einstaklingum sem sótt hafi um starf hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda, með milligöngu Vinnumálastofnunar, hafi verið ráðinn til starfa auk þess sem hlutaðeigandi atvinnurekandi hafi ekki veitt stofnuninni upplýsingar um ráðningar í kjölfar auglýsinganna. Þá hafi enginn umsækjenda sem hafi verið skráður án atvinnu hjá Vinnumálastofnun tilkynnt um að hafa hafið störf hjá hlutaðeigandi atvinnurekanda í kjölfar auglýsinganna.

 

Það er því mat ráðuneytisins að í ljósi framangreinds hafi ekki verið fullreynt að ráða einstakling í það starf sem hér um ræðir sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana. Á það ekki síst við þegar litið er til þess að um er að ræða starf þar sem ekki er krafist tiltekinnar færni hjá þeim sem ráðinn verður til að gegna starfinu, þess fjölda einstaklinga sem skráður var án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í júlí 2021 sem og þess fjölda umsókna sem barst hlutaðeigandi atvinnurekanda í kjölfar auglýsinga um sambærilegt starf. Þá verður jafnframt að mati ráðuneytisins að telja málefnalegt, ekki síst í ljósi þess að um er að ræða starf þar sem ekki er krafist tiltekinnar færni hjá þeim sem ráðinn verður til að gegna starfinu, að hlutaðeigandi atvinnurekandi ráði einstakling til að gegna starfinu sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana, enda þótt atvinnurekandinn þurfi að þjálfa viðkomandi einstakling til að gegna starfinu.

 

Þegar litið er til aðstæðna á innlendum vinnumarkaði í júlí 2021, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. einnig lög nr. 105/2014, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, eðli þess starfs sem um ræðir, sem og gagna málsins í heild, er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi hvorki verið sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða einstakling í starfið af innlendum vinnumarkaði né af sameiginlegum vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins sem þegar hefur heimild til að ráða sig til starfa á innlendum vinnumarkaði án takmarkana.

 

Með vísan til alls framangreinds er það niðurstaða ráðuneytisins að skilyrði 9. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, um veitingu tímabundins atvinnuleyfis vegna skorts á starfsfólki, hafi ekki verið uppfyllt í máli þessu.

 

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

 

 

 

 

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2021, um synjun á veitingu tímabundins atvinnuleyfis til handa […], sem er filippseyskur ríkisborgari, í því skyni að ráða sig til starfa hjá Reykjavik tourist informati ehf., skal standa.


 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum